Í Barcelona er gott að
vera!!Þetta var bara geðveik ferð!
En alltof alltof stutt. Gáfum okkur ekki tíma í að skoða
neitt, en fórum í eitt skipti í kljáf uppá fjall, yfir sjó.
Það var rosa flott að sjá svona yfir borgina. Við vorum bara
mikið í því að fara á bari og drekka bjór og skemmta okkur.
Það eru nokkrar myndir á myspacinu mínu. En við tókum
myndavélina sjaldan með okkur eitthvað út, þyrftum helst að
eiga tvær, eina litla og svo þessa sem við eigum. En nokkrir
úr ferðinni tóku helling af myndum og video-um, ég vona að ég
geti fengið myndirnar frá þeim eitthvern
tímann. Tókum
öll rútu saman uppá flugvöll á föstudegi og vorum komin í
Barca um kvöldið. Fórum í Taxa á hótelið sem hét Hotel
Rialto. Röltum svo á Römbluna og fengum
okkur bjór. Báðum um stóra bjóra og þjóninn kemur þá með eins
lítra könnur á mann. Alveg geggjað =) Svo
fórum við bara heim að
lúlla.
Daginn eftir röltum við Atli í
bæinn. Ætluðum að reyna að versla eitthvað. Fórum í Corte Inglés,
en það er bara jafn dýrt og hérna heima svo að við keyptum ekki
neitt, skoðuðum bara. Þetta var c.a 8 hæða hús og á toppnum er
matsalur og gluggar svo að það sé hægt að sjá yfir borgina. Veðrið
var alveg geggjað allan tímann, og skrýtið að heyra jólalög í svona
hita. Veðrið var svipað góðum sumardegi hérna á Íslandi. Þegar við
komum á hótelið skipti ég um skó því að ég var búin að labba svo
mikið og var í stigvélum og komin með blöðru á tánna. Og við tók
ennþá meira labb. Löbbuðum að sjónum með Hafdísi systur hans Atla
og Óla manninum hennar. Óli frændi hans Óla kom líka með, en hann
býr í Barca og ætlaði að sýna okkur aðeins borgina. Fórum þá í
kljáfinn og uppá fjall. Fengum okkur smá að borða þarna á fjallinu
og horfðum yfir borgina á meðan.
Það var smá vesen
að reyna að komast af fjallinu,, eða kannski
ætti maður að kalla þetta hól eða hlíð. Biðum eftir leigubíl lengi
lengi á svona leigubílastoppistöð, en enginn leigubíll kom svo að
við fórum á eitthvað hótel og báðum þau um að hringja á taxa fyrir
okkur. Þetta var eitt flottasta hótel sem ég hef séð. Minnir að það
hafi heitið Miramar. Biðum líka heillengi inni á hótelinu og þegar
leigubílinn kom sagði bílstjórinn að það var svo mikið vesen að fá
leigubíl því að það væri kröfuganga niðri bæ og allar samgöngur
lágu niðri á meðan. Svo komum við á hótelið og gerðum okkur fín og
fórum á djammið. Enduðum á hótelherbergi með strákunum úr
ferðinn Siggunum tveim og Gunna, fífluðumst þar alveg
heilleingi. Heavy gaman
! =)
Á sunnudeginum man ég ekki alveg
hvað við gerðum, sváfum aðeins of lengi. En sunnudagskvöldið fórum við öll út saman að
borða, vorum um 17 held ég. Þetta var svona
sjávaréttarstaður. Ég fékk mér ostru. Langaði að smakka.
Þetta var algjör vibbi. Alveg eins og að drekka sjó með
eitthverju gumsi í. Helti þessu öllu uppí mig og beit einu
sinni í þetta, en það var svo ógeðslegt að ég kyngdi því bar.
Jukkkk!! Fórum svo öll á skemmtistað rétt hjá veitingastaðnum
sem hét Joker. Þar voru stelpur að vinna við það að dansa
uppá borðum og börum. Við vorum þar mesta hluta kvöldsins og
drukkum og drukkum og dönsuðum. Gæinn sem var svona einskonar
dyravörður eða eitthvað var svo ánægður með okkur að þegar
var verið að loka kom hann með 30 vodka í burn fyrir okkur.
Ekki slæmt það=) En annars man ég ekkert eftir
því mér var bara sagt það daginn eftir. Man bara eftir að
hafa alltaf haldið á drykk í hendinni en man ekki
hvaðan þeir komu. hehe
Eldra fólkið fór svo
bara uppá hótel að sofa en við unga fólkið vildum djamma
meira. Röltum eitthvað, en ekki mikið að gera á svona
sunnudegi. Gunni fékk sér að pissa á götuhorni og akkúrat þá
kemur löggan. Þær ætla að taka hann með sér uppá stöð en fær
sjéns ef hann gat borgað sektina strax og fékk
helmingsafslátt útaf við vorum útlendingar.
Við enduðum bara aftur uppá hótel herbergi
í spjalli og co. Þessi Siggi fór svo út og keypti bjór handa
okkur. Það var hægt að kaupa bjór af eh gæjum úti á götu,
allir með sama bjórinn. Estrella held ég að hann heiti. En
bjórinn var bara gagnfreðinn. Þannig að það var ekkert hægt
að drekka hann.
Mánudagurinn fór svo bara í rölt
og fórum á Hard Rock að borða. Svo var bara flug heim um kvöldið.
Vorum komin í rúmið um 5 um nóttina.
Ég eyddi ekki
krónu úti, planið var að versla eins og crazy person, en ég tók
ekki veskið upp í allri ferðinni, en keypti mér i-pod til að bæta
það upp J
Rosa ánægð með
hann.
Svo er bara vinna framundan og
íbúð og jólin. Hlakka rosa til jólanna. Verðum örugglega öll heima
hjá mömmu og pabba.
Ég er orðin vaktjóri í vinnunni sem er rosa fínt því þá get ég
skipað fólki fyrir. Ekki er verra að vinkona mín hún Kaja er
verslunarstjóri
=)
En jæja held að þetta sé komið gott
í bili. Er að fara að laga aðeins til, er ekki enn búin að
taka upp úr töskunni minni, svo fer ég uppí íbúð. Atli er þar
núna. Örugglega að smíða fyrir hurðunum. Við getum svo
vonandi farið að parketleggja næstu
helgi.
Bless í bili